Fyrir íslensk hlaðvörp

Heill þáttur inn.
Klippur út.

Klippari finnur bestu augnablikin, rammar inn þann sem talar og setur íslenska skjátexta orð fyrir orð — tilbúið fyrir TikTok, Reels og Shorts.

  • 36 mín. þáttur
  • 8 klippur
  • ~10 mín. á Makka
🇮🇸 Íslenskir skjátextar 🎥 Rammar inn þann sem talar 🔊 −14 LUFS

Úr Fjármálakastinu, þætti 123

Upprunaleg 16:9 upptaka úr hlaðvarpsstúdíói

Upptakan þín, 16:9

Lóðrétt klippa með titli og skjátexta

Klippan, 9:16

Eins og tökumaður væri á staðnum

Klippari sér hver talar og sýnir alla manneskjuna. Myndavélin stendur kyrr á meðan hún talar og klippir yfir þegar hinn tekur við — ekkert flökt, ekkert rennsli.

Þrjú skref

  1. 1

    Settu inn þáttinn

    Dragðu upptökuna inn á Makkanum eða hladdu henni upp úr símanum. Klukkutíma þáttur er skrifaður upp á nokkrum mínútum.

  2. 2

    Veldu klippurnar

    Klippari stingur upp á bestu augnablikunum með einkunn og rökum. Strjúktu til hægri til að samþykkja og til vinstri til að hafna.

  3. 3

    Birtu

    1080×1920 klippur með skjátextum, jöfnuðu hljóði og færslutexta. Sæktu þær beint í símann — tilkynning lætur þig vita þegar þær eru tilbúnar.

Veldu útlit

Níu tilbúnir stílar, átján letur með öllum íslensku stöfunum. Sýnishornið í símanum er teiknað með sama kóða og lokaklippan.

Pop
Kassi
Karaoke
Orð fyrir orð
Skopp
Mjúkt

Gert fyrir íslensku

Íslenskir skjátextar

Orð fyrir orð með þ, ð, æ og ö. Lagaðu orð einu sinni og það lagast alls staðar. Lykilorð og tölur fá lit og emoji.

Finnur góðu augnablikin

Les uppskriftina og velur klippur sem standa sjálfar, með sterkum krók í byrjun. Lærir af því sem þú samþykkir.

Titill, lokaspjald, hljóð

Titill efst fyrstu sekúndurnar, lokaspjald með nafni þáttarins og hljóð jafnað fyrir samfélagsmiðla.

Einkamál þín

Allt keyrir á Makkanum. Óbirtir þættir fara aldrei í skýið nema þú kjósir það.

Stjórnaðu úr símanum

Hladdu upp, samþykktu klippur, veldu útlit og sæktu klippurnar í símanum.

Áfram í DaVinci

Þarf klippa meiri vinnu? Opnaðu hana í DaVinci Resolve með römmun og skjátextum sem hægt er að breyta.

Sæktu Klippara

Fyrir Mac með Apple Silicon. Allt keyrir á vélinni þinni — upptökurnar fara hvergi.

⬇ Sækja fyrir Mac

Útgáfa 0.8.2 · 1 MB · macOS 26 eða nýrra · M1–M4

  1. Opnaðu DMG-skrána og dragðu Klippara í Applications.
  2. Fyrsta opnun: appið er ekki enn vottað af Apple. Ef macOS stöðvar það, farðu í Kerfisstillingar → Persónuvernd og öryggi og veldu Opna samt.
  3. Ef Klippari biður um það, settu upp tvö verkfæri með Homebrew: brew install uv ffmpeg
  4. Fyrsta ræsing setur upp vélina (nokkrar mínútur). Fyrsti þátturinn sækir talgreiningarlíkanið (um 1,6 GB) einu sinni.